Tónlist og góð stemning

Hljómsveit

Frá smærri hljómsveitaruppsetningu upp í stærri viðburði og dansleiki. Ég get bæði komið með mitt eigið samstarfsfólk eða tekið þátt í verkefni með öðrum tónlistarmönnum.

Einsöngur

Einsöngur við athafnir, tónleika, fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi og önnur tilefni, með lifandi undirleik eða vönduðu undirspili eftir því sem hentar.

Raddir

Ég hef sungið raddir í fjölda stórra tónleika-, sjónvarps- og stúdíóverkefna frá árinu 2004 og er vön að vinna með ólíku tónlistarfólki, útsetningum og raddahópum.

Neonbandið

Öflug viðburðahljómsveit fyrir árshátíðir, veislur, dansleiki og stærri viðburði. Við leggjum áherslu á fagmennsku, góða stemningu og lög sem fólk þekkir, syngur með og vill dansa við.

Veislustjórn

Söngur, sviðsreynsla og yfir 20 ára reynsla af fjölbreyttum viðburðum nýtist vel þegar halda þarf utan um dagskrá, skapa stemningu og tengja ólíka hluta kvöldsins saman.

Yfir 20 ár á sviði

Ég hef starfað sem atvinnusöngkona frá árinu 2004 og komið fram við ótrúlega fjölbreyttar aðstæður, allt frá stórum tónleikum, sjónvarpsverkefnum og stúdíóvinnu yfir í dansleiki, árshátíðir, brúðkaup og einkaviðburði.

Ég hef í gegnum árin unnið með fjölda af þekktustu tónlistarmönnum landsins og mörg samstarfsverkefnin hafa staðið árum saman.