High Performance Coaching

Ég er Alma Rut

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fólki, hvað drífur okkur áfram, hvað heldur aftur af okkur og hvað hjálpar okkur að vaxa.


Ég lauk námi í stjórnendamarkþjálfun í Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við CoachU og er með ACC vottun frá International Coaching Federation. Ég er einnig vottaður High Performance Coach.


Ég er núna að skrifa lokaritgerðina mína og útskrifast með BS-gráðu í sálfræði við Háskólann á Akureyri vorið 2027.


En ég kem líka með reynslu sem fæst ekki eingöngu í skólastofu.


Ég hef starfað sem atvinnusöngkona í yfir tvo áratugi, unnið við fyrirtækjarekstur, mannauð, stjórnun og verkefnastjórnun og tekist á við verkefni þar sem samskipti, ábyrgð, ákvarðanir, pressa og framkvæmd skipta öllu máli.


Þessi blanda mótar mig sem markþjálfa. Ég er fagleg og skipulögð, en líka hlý, forvitin, praktísk og mjög áhugasöm um manneskjuna sem situr á móti mér.

Hvað er markþjálfun?

Markþjálfun er framfaramiðað samtal.

Þú kemur með viðfangsefnið. Ég held utan um ferlið.

Við getum unnið með ákvörðun sem þú þarft að taka, breytingar, markmið, sjálfstraust, samskipti, forgangsröðun, leiðtogahlutverk, starfsframa eða einfaldlega þá tilfinningu að þú vitir að eitthvað þarf að breytast en sért ekki alveg viss um hvað eða hvernig.

Ég hlusta, spyr, spegla, skora á og hjálpa þér að skoða það sem þú ert að glíma við frá fleiri sjónarhornum.

Ég er ekki þarna til að gefa þér tilbúin svör.

Þú ert sérfræðingurinn í þínu lífi. Mitt hlutverk er að hjálpa þér að sjá skýrar það sem þú sérð ekki alltaf þegar þú ert ein(n) með eigin hugsanir.

Fagmennska skiptir máli

Ég er með ACC vottun frá International Coaching Federation, ICF.

ACC stendur fyrir Associate Certified Coach og er alþjóðleg fagvottun sem staðfestir að ég hef lokið viðurkenndri menntun, öðlast raunverulega reynslu í markþjálfun, fengið mentorþjálfun og sýnt fram á hæfni mína samkvæmt faglegum viðmiðum ICF.

Ég vinn samkvæmt kjarnahæfni og siðareglum ICF og legg mikla áherslu á trúnað, traust og fagleg vinnubrögð.

Fyrir þig þýðir ACC vottunin að það er ákveðinn gæðarammi á bak við starfsheitið mitt.

Ekki bara námskeið.
Ekki bara góðar spurningar.
Heldur fagleg þjálfun, reynsla og ábyrgð.

Hvað gætir þú unnið með í markþjálfun?

Fólk kemur sjaldnast í markþjálfun vegna þess að allt erí rugli.

Oft er það einmitt fólk sem er að standa sig vel, en veit að það getur orðið eitthvað skýrara, betra eða markvissara.

Það getur verið að þú viljir taka erfiða ákvörðun, forgangsraða betur, styrkja sjálfstraustið, takast á við breytingar, setja skýrari mörk, finna aftur fókus, þróast sem stjórnandi eða hætta að fresta einhverju sem þú veist að skiptir máli.

Stundum er markmiðið mjög skýrt.

Stundum byrjum við einfaldlega á spurningunni:
Hvað er það sem þú vilt að verði öðruvísi?

Hástigs frammistaða sem endist

Ég er Certified High Performance Coach og býð upp á Hástigs frammistöðu þjálfun fyrir fólk sem vill vinna markvisst með það hvernig það lifir, vinnur og stendur sig til lengri tíma.

Hástigs frammistaða þýðir að ná árangri umfram hefðbundin viðmið, stöðugt og yfir lengri tíma, á sama tíma og viðkomandi viðheldur jákvæðri vellíðan og góðum samböndum.

Þetta er því ekki hugmyndafræði um meiri vinnu, meiri pressu eða fullkomnun.

Þvert á móti.

Við skoðum meðal annars skýrleika, orku, hugrekki, framleiðni og áhrif og hvernig þessir þættir birtast í raunverulegu lífi þínu og starfi.

  • Hvar ertu að eyða orkunni þinni?
  • Hvað skiptir raunverulega máli?
  • Hvaða samtal ertu að forðast?
  • Hvað þarftu að hætta að gera?
  • Hvar þarftu meira hugrekki?
  • Og hvað myndi breytast ef þú færir það besta í þér oftar inn í daglegt líf?

Markmiðið er ekki að gera meira af öllu. Markmiðið er að verða markvissari í því sem skiptir máli.

Tvær leiðir, sama markmið: að hjálpa þér áfram

Markþjálfun

Þú kemur með viðfangsefnið og við vinnum með það sem skiptir þig mestu máli hverju sinni.

Þetta hentar vel ef þú ert með ákveðið verkefni, ákvörðun, breytingu eða áskorun sem þú vilt skoða og vinna markvisst með.

Hástigs frammistöðu þjálfun

Skipulagðara ferli fyrir þig sem vilt vinna heildstætt að frammistöðu, líðan og vexti til lengri tíma.

Við vinnum markvisst með ákveðin lykilsvið en tengjum þau alltaf við þitt raunverulega líf, þín markmið og þínar aðstæður.

Hvor leiðin er betri? Sú sem þjónar því sem þú þarft núna.

Fyrir stjórnendur og fyrirtæki

Stjórnendur þurfa sjaldnast fleiri almenn ráð um stjórnun.

Þeir þurfa oft frekar rými til að hugsa.

Rými til að stíga út úr daglegum rekstri, skoða stöðuna af meiri fjarlægð, vinna með erfiðar ákvarðanir, samskipti, forgangsröðun, ábyrgð og eigin leiðtogastíl.

Bakgrunnur minn í stjórnendamarkþjálfun, rekstri, mannauðsmálum og sálfræði nýtist sérstaklega vel í þeirri vinnu.

Ég vinn með stjórnendum, sérfræðingum og öðrum sem bera ábyrgð og vilja þróa bæði eigin frammistöðu og hvernig þeir mæta fólkinu í kringum sig.

Markþjálfun getur líka verið hluti af þróun starfsfólks, stuðningi við stjórnendur eða breytingaferlum innan fyrirtækja.

Af hverju Alma?

Ég get sýnt þér vottanir og menntun, og þær skipta máli.

En þær segja ekki alla söguna.

Ég hef staðið á sviði fyrir framan þúsundir manna og líka upplifað sviðsskrekk.

Ég hef stjórnað verkefnum þar sem margir þræðir þurfa að ganga upp á sama tíma.

Ég hef unnið í rekstri þar sem ákvarðanir hafa raunverulegar afleiðingar fyrir fyrirtæki, viðskiptavini og starfsfólk.

Ég hef verið leiðtogi, samstarfsmaður, kennari, nemandi, frumkvöðull og móðir.

Og ég hef þurft, eins og flest fólk, að endurskoða, læra, breyta um stefnu og finna nýjar leiðir oftar en einu sinni.

Þess vegna finnst mér markþjálfun ekki snúast um að einhver standi hinum megin við borðið með öll svörin.

Hún snýst um gott samtal, hugrekki til að skoða sjálfan sig og vilja til að gera eitthvað við það sem kemur í ljós.

Hástig

Ég stofnaði Hástig til að halda utan um markþjálfun mína, námskeið og önnur verkefni sem tengjast vexti og frammistöðu.

Nafnið vísar í hástigs frammistöðu, en fyrir mér felst Hástig ekki í því að vera fullkomin eða alltaf á toppnum.

Það snýst um að þekkja sjálfan sig betur, vita hvað skiptir máli, nýta styrkleikana sína, byggja upp venjur sem styðja mann og hafa hugrekki til að taka næsta skref.

Árangur skiptir máli. En það skiptir líka máli hvernig okkur líður á leiðinni þangað.

Viltu sjá hvort markþjálfun hjá mér henti þér?

Þú þarft ekki að mæta með fullmótað markmið eða vita nákvæmlega hvað þú vilt vinna með.

Það er nóg að finna að þú viljir hreyfa eitthvað áfram.

Við getum byrjað á stuttu kynningarsamtali þar sem þú segir mér aðeins frá því sem þú ert að leita að og ég útskýri hvernig ég vinn.

Síðan sjáum við einfaldlega hvort við séum góð samsvörun.

Bóka kynningarsamtal